Starfsfólk | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

FJARGEÐHEILBRIGÐISÞJÓNUSTAN MÍN LÍÐAN

Um okkur

Mín líðan býður upp á alhliða sálfræðiþjónustu á netinu. Boðið er upp á staðlaða hugræna atferlismeðferð (HAM) á netinu við einkennum þunglyndis, félagskvíða og lágu sjálfsmati. Öll samskipti við sálfræðing fara fram í gegnum skrifaðan texta. Árið 2019 bætti Mín líðan þjónustu sína með því að bjóða einnig upp á fjarviðtöl, sem eru myndfundir þar sem hægt er að eiga samskipti við sálfræðing augliti til auglitis með öruggum hætti í gegnum internetið. Mín líðan er ný leið í sálfræðiþjónustu á Íslandi og var fyrsta íslenska fjarheilbrigðisþjónustan sem fékk leyfi til reksturs frá Embætti landlæknis. Opnað var fyrir þjónustu Mín líðan vorið 2018 og þar starfa nú fjórir löggildir sálfræðingar.

SÁLFRÆÐINGAR MÍN LÍÐAN

Löggiltir og reyndir sálfræðingar

Tanja Dögg Björnsdóttir framkvæmdastjóri og sálfræðingur

tanja@minlidan.is

Tanja Dögg er stofnandi, framkvæmdastjóri og sálfræðingur hjá Mín líðan. Tanja sinnir greiningu og meðferð sálræns vanda hjá ungmennum og fullorðnum og notar aðeins gagnreyndar meðferðir. Hún hefur sérstakan áhuga á að aðstoða þá sem glíma við félagskvíða, þunglyndi og lágt sjálfsmat, hafa gengið í gegnum áföll og þá sem upplifa andlega vanlíðan á meðgöngu og eftir fæðingu.

Tanja Dögg Björnsdóttir
Ingibjörg Thors sálfræðingur

ingibjorg@minlidan.is

Dr. Ingibjörg er sálfræðingur hjá Mín líðan og býður upp á almenna sálfræðiþjónustu fyrir unglinga og fullorðna. Hún hefur sérhæft sig í gagnreyndum, árangursríkum meðferðum við kvíðaröskunum og hefur unnið undir handleiðslu erlendra sérfræðinga á þeim starfsvettvangi síðan árið 2012. Ingibjörg hefur sérstakan áhuga á að aðstoða þá sem glíma við kvíða, depurð, streitu/kulnun, lágt sjálfsmat eða þurfa aðstoð vegna áfalla. Ingibjörg getur veitt sálfræðiviðtöl eftir kl. 16 á daginn.

Ingibjörg Thors
Gyða Dögg Einarsdóttir sálfræðingur

gyda@minlidan.is

Gyða Dögg er sálfræðingur hjá Mín líðan og sinnir greiningu og meðferð sálræns vanda hjá fullorðnum. Gyða hefur nokkurra ára reynslu af meðferðarvinnu með fullorðnum og fékk góða starfsreynslu við nám sitt í Bandaríkjunum. Gyða notar gagnreyndar aðferðir í meðferð og hefur sérstakan áhuga á að aðstoða þá sem glíma við kvíða, áfallastreitu, lágt sjálfsmat og einkenni þunglyndis.

Gyða Dögg Einarsdóttir
Alida Ósk Smáradóttir sálfræðingur

alida@minlidan.is

Alida Ósk er sálfræðingur hjá Mín líðan og býður upp á sálfræðiþjónustu fyrir ungmenni og fullorðna. Alida hefur mikla reynslu af ADHD greiningum hjá fullorðnum, en hún starfaði áður á geðsviði Landspítala. Alida beitir gagnreyndum aðferðum í að draga úr sálrænum vanda og hefur sérstakan áhuga á meðferð við ADHD og kvíðaröskunum (s.s. félagskvíða og almennri kvíðaröskun).

Alida Ósk Smáradóttir
Laufey Ásta Guðmundsdóttir sálfræðingur

laufey@minlidan.is

Laufey Ásta er sálfræðingur hjá Mín líðan og sinnir greiningu og meðferð sálræns vanda hjá ungmennum og fullorðnum. Laufey beitir aðeins gagnreyndum aðferðum í meðferð og hefur sérstakan áhuga á að aðstoða ungmenni og ungt fólk sem glímir við kvíða, þunglyndi, lágt sjálfsmat og erfiðleika í félagslegum samskiptum. Hún veitir einnig foreldrum uppeldisráðgjöf.

Laufey Ásta Guðmundsdóttir

ANNAÐ STARFSFÓLK MÍN LÍÐAN

Þeir sem hjálpa okkur að hjálpa þér

Sveinn Óskar Hafliðason fjármála- og markaðsstjóri

sveinn@minlidan.is

Sveinn Óskar er annar stofnanda Mín líðan og sér um fjár-, sölu- og markaðsmál fyrirtækisins. Hann lauk B.Sc. prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2014, löggildingu í verðbréfamiðlun árið 2015 og mastersnámi í fjármálum (M.Fin) vorið 2019.

Sveinn Óskar Hafliðason