Meðferð við lágu sjálfsmati | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

TAKTU FYRSTA SKREFIÐ Í ÁTT AÐ BETRI LÍÐAN

Meðferð við lágu sjálfsmati

Mín líðan býður upp á 10 tíma staðlaða sálfræðimeðferð á netinu við lágu sjálfsmati. Meðferðartímanir innihalda fræðslu, verkefni, æfingar og spurningalista. Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og hvernig á að beita þeim í daglegu lífi. Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta. Hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er á öruggu heimasvæði Mín líðan yfir áskriftartímann. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan með aðstoð sálfræðings!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500 kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.

STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU HJÁ MÍN LÍÐAN

Hvernig er meðferðin uppbyggð?

Fræðsla
Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem hjálpa þér að bæta andlega líðan og auka sjálfstraust þitt.
  • Meðferðin inniheldur 10 meðferðartíma
  • Hver tími tekur 30–60 mínútur í yfirferð
  • Meðferðin er opin í 14 vikur frá kaupum
Verkefni og æfingar
Þú gerir verkefni og æfingar sem hjálpa þér að tileinka þér þær aðferðir sem farið er yfir í fræðslunni.
  • Gagnvirkar æfingar
  • Endurgjöf frá sálfræðingi á verkefni innan 1-3 virkra daga
  • Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta
Samtal við sálfræðing
Sálfræðingur þinn er þér ávallt innan handar. Þú getur átt samskipti við hann hvenær sem er með því að senda honum skilaboð. Þar færðu þá aðstoð og þann stuðning sem hentar þér.
  • Skilaboðum er yfirleitt svarað samdægurs
  • Skilaboðin eru send á milli í skrifuðum texta
Spurningalistar
Þú svarar stöðluðum spurningalistum þrisvar sinnum yfir meðferðina til að meta árangur þinn í meðferðinni.
  • Í byrjun hvers tíma metur þú einnig þína líðan á bilinu 0-10 og fylgist með framvindunni

Hvernig lærir þú að draga úr einkennum lágs sjálfsmats?

Meðferðin hjálpar þér að:

Þekkja einkenni lágs sjálfsmats

Þú lærir hvað lágt sjálfsmat er og hvernig það þróaðist og hefur áhrif á þig í daglegu lífi.

Brjóta upp vítahring lágs sjálfsmats

Þú lærir aðferðir sem geta gagnast þér við að brjóta upp þann vítahring sem þú ert í.

Draga úr óhjálplegri sjálfsgagnrýni

Þú lærir að draga úr óhjálplegri sjálfsgagnrýni og neikvæðum skoðunum sem þú hefur á þér.

Koma auga á jákvæða eiginleika

Þú lærir að koma auga á jákvæða eiginleika í þínu fari og eykur þannig sjálfstraust þitt.

STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU

Náðu tökum á þinni líðan!

Þeir sem finna fyrir lágu sjálfsmati eiga oft erfitt með að taka fyrsta skrefið. Oft veit fólk ekki hvernig það á að fara að því að auka sjálfstraust sitt. Stöðluð sálfræðimeðferð á netinu er frábær kostur til að byrja að auka sjálfstraustið. Það skiptir ekki máli hvort þú finnir fyrir lágu sjálfsmati í ákveðnum aðstæðum eða almennt í daglegu lífi, meðferðin getur verið þægileg leið til að stíga fyrsta skrefð í átt að betri líðan. Í meðferðinni lærir þú að draga úr sjálfsgagnrýni, endurmeta neikvæð viðhorf og koma auga á jákvæða eiginleika í þínu fari. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan og öðlist aukið sjálfstraust!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.