TAKTU FYRSTA SKREFIÐ Í ÁTT AÐ BETRI LÍÐAN
Meðferð við félagskvíða
Mín líðan býður upp á 10 tíma staðlaða sálfræðimeðferð á netinu við vægum til miðlungs einkennum félagskvíða (einnig þekkt sem félagsfælni). Meðferðartímanir innihalda fræðslu, verkefni, æfingar og spurningalista. Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og hvernig á að beita þeim í daglegu lífi. Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta. Hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er á öruggu heimasvæði Mín líðan yfir áskriftartímann. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan með aðstoð sálfræðings!
Fræðsla
- Meðferðin inniheldur 10 meðferðartíma
- Hver tími tekur 30–60 mínútur í yfirferð
- Meðferðin er opin í 14 vikur frá kaupum
Verkefni og æfingar
- Gagnvirkar æfingar
- Endurgjöf frá sálfræðingi á verkefni innan 1-3 virkra daga
- Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta
Samtal við sálfræðing
- Skilaboðum er yfirleitt svarað samdægurs
- Skilaboðin eru send á milli í skrifuðum texta
Spurningalistar
- Í byrjun hvers tíma metur þú einnig þína líðan á bilinu 0-10 og fylgist með framvindunni
Hvernig lærir þú að draga úr einkennum félagskvíða?
Meðferðin hjálpar þér að:
Þekkja einkenni félagskvíða
Þú lærir hvað félagskvíði felur í sér og lærir að vera meðvitaðri um eigin félagskvíðaeinkenni.
Brjóta upp vítahring félagskvíða
Þú lærir aðferðir sem geta gagnast þér við að brjóta upp þann vítahring sem þú ert í.
Draga úr kvíða í félagslegum aðstæðum
Þú lærir að fara í félagslegar aðstæður sem þú hefur forðast eða fundið fyrir kvíða í.
Auka sjálfstraust þitt í samskiptum
Þú lærir að sjá jákvæða eiginleika í þínu fari og endurmeta neikvæðar skoðanir.
STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU
Náðu tökum á þinni líðan!
Þeir sem finna fyrir félagskvíða geta átt erfitt með að leita sér aðstoðar sálfræðings, til dæmis vegna erfiðleika með að mæta í sálfræðitíma eða tala við aðra um hvernig þeim líður. Sumir upplifa mjög væg félagskvíðaeinkenni sem hafa lítil áhrif á daglegt líf og aðrir finna ekki fyrir neinum einkennum, en vilja læra hjálplegar aðferðir til að líða betur í félagslegum aðstæðum eða læra að hafa betri stjórn á eigin líðan. Hvort sem að þú finnur fyrir vægum einkennum sem hafa lítil áhrif á daglegt líf eða alvarlegri einkennum sem trufla þig mikið í daglegu lífi, getur stöðluð sálfræðimeðferð á netinu verið þægileg leið til að stíga fyrsta skrefið í átt að betri líðan. Í meðferðinni lærir þú að brjóta upp vítahring félagskvíða sem felur m.a. í sér að læra að fara í aðstæður sem valda þér kvíða. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan og öðlist aukið sjálfstraust í samskiptum!