STREITUSTJÓRNUN - NÁÐU TÖKUM Á STREITUNNI!
Námskeið við streitu
Mín líðan býður upp á 5 tíma námskeið á netinu við einkennum streitu. Þú lærir gagnreyndar og árangursríkar aðferðir til að draga úr streitu í daglegu lífi. Aðferðirnar byggja m.a. á hugrænni atferlismeðferð og fela í sér ýmsar slökunaræfingar (t.d. öndunar- og hugleiðsluæfingar). Á námskeiðinu lærir þú að takast á við streitu, hugsa vel um sjálfa(n) þig og auka vellíðan. Tímarnir samanstanda af fræðslu, æfingum, spurningalistum og verkefnabók. Hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er á öruggu heimasvæði Mín líðan yfir námskeiðstímann. Markmiðið er að þú náir tökum á streitunni!
1. Fræðsla
- Námskeiðið inniheldur 5 tíma
- Hver tími tekur 30–60 mínútur í yfirferð
- Námskeiðið er opið í 10 vikur frá kaupum
2. Æfingar
- Þú gerir æfingarnar þegar þér hentar
3. Skilaboð
- Skilaboðum er yfirleitt svarað samdægurs
- Skilaboðin eru send á milli í skrifuðum texta
4. Spurningalistar
- Í byrjun hvers tíma metur þú einnig þína líðan á bilinu 0-10 og fylgist með framvindunni
5. Verkefnabók
- Verkefnabókin inniheldur samantekt á fræðslunni og æfingar sem kenndar voru
Hvernig lærir þú að draga úr streitunni?
Námskeiðið hjálpar þér að:
Þekkja helstu einkenni streitu
Þú lærir hvað streita felur í sér og hvers vegna þú finnur fyrir henni í daglegu lífi.
Brjóta upp vítahring streitu
Þú lærir aðferðir sem hjálpa þér að brjóta upp þann vítahring sem þú ert í.
Breyta neikvæðum hugsunarhætti
Þú lærir að koma auga á óhjálplegar hugsanir og sjá þær út frá nýju sjónarhorni.
Breyta óhjálplegri hegðun
Þú lærir m.a. að hætta að fresta hlutum, gera minni kröfur til þín og lærir ýmsar slökunaraðferðir.
NETNÁMSKEIÐ VIÐ STREITU
Náðu tökum á streitunni!
Þeir sem finna fyrir streitu eiga oft erfitt með að taka fyrsta skrefið. Oft veit fólk ekki hvernig það á að fara að því að draga úr streitunni. Námskeið á netinu við streitu er frábær kostur til að byrja að minnka streituna. Það skiptir ekki máli hvort þú finnir fyrir streitu i í ákveðnum aðstæðum eða almennt í daglegu lífi, meðferðin getur verið þægileg leið til að stíga fyrsta skrefð í átt að betri líðan. Í meðferðinni lærir þú að brjóta upp vítahring streitu sem felur m.a. í sér að gera minni kröfur til sín og gefa sér tíma til að slaka á. Markmiðið er að þú náir tökum á streitunni!