Ofsakvíði | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

Hvað er ofsakvíði?

Ofsakvíði

Ofsakvíði (einnig þekkt sem felmtursröskun) felur í sér endurtekin, skyndileg kvíðaköst. Kvíðakast er gífurleg hræðsla sem nær hámarki á nokkrum mínútum og því fylgir líkamleg og hugræn einkenni (t.d. hraður hjartsláttur, köfnunartilfinning, svimi, skjálfti, hröð öndun, óraunveruleikatilfinning og finnast maður vera að deyja eða missa stjórn á sjálfum sér). Kvíðakastið kemur upp skyndilega og án sýnilegrar ástæðu. Fólk kemst í mikið uppnám þegar þetta gerist og hefur áhyggjur af því að eitthvað alvarlegt ami að. Fólk byrjar að fá sífelldar áhyggjur af því að fá annað kvíðakast eða breytir hegðun sinni á einhvern hátt til að koma í veg fyrir kvíðakast (t.d. að forðast hreyfingu eða ókunnuga staði).

Dragðu úr ofsakvíða með aðstoð sálfræðings

Hvernig getum við hjálpað þér?

Hjá Mín líðan getur þú fengið aðstoð við að draga úr einkennum ofsakvíða með fjarviðtölum. Fjarviðtöl eru 50 mínútna myndfundir þar sem þú átt samskipti við sálfræðing augliti til auglitis með öruggum hætti í gegnum internetið. Fjarviðtöl eru eins og sálfræðiviðtöl á stofu, eini munurinn er sá að þú átt samskipti við þinn sálfræðing í gegnum netið. Í fjarviðtölum getur þú fengið aðstoð við hvers konar sálrænum vanda, t.d. einkennum kvíða (t.d. ofsakvíða, félagskvíða, almenns kvíða og heilsukvíða), þunglyndislágu sjálfsmati og áfallastreitu. Flest stéttarfélög og margir vinnuveitendur niðurgreiða sálfræðikostnað.

Sálfræðingar Mín líðan nota aðeins gagnreyndar aðferðir sem rannsóknir hafa sýnt að eru árangursríkar við að draga úr einkennum almenns kvíða. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum á Íslandi er mælt með hugrænni atferlismeðferð sem fyrsta meðferðarúrræði við flestum gerðum sálræns vanda.

Í sálfræðimeðferð hjá Mín líðan er byrjað á að fara yfir og kortleggja vítahring ofsakvíða, skoðað er hvaða þættir viðhalda honum og vítahringurinn brotinn upp með hjálplegum, gagnreyndum aðferðum.

Taktu fyrsta skrefið í átt að betri líðan

Hvernig bóka ég fjarviðtal?

Veldu sálfræðing

Þú velur sálfræðing sem þú vilt hefja meðferð hjá. Hjá Mín líðan starfa reyndir sálfræðingar sem veita þér persónulega og góða þjónustu.

Bókaðu tíma

Þú nýskráir þig og fyllir út upplýsingar um þig. Þinn sálfræðingur hefur samband við þig og þið finnið tíma fyrir fjarviðtal.

Mættu í fjarviðtal

Þú skráir þig inn á heimasvæðið þegar viðtalið er að hefjast, ferð í myndfundakerfið og byrjar fjarviðtalið með þínum sálfræðingi.