Sálfræðingur | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

Taktu fyrsta skrefið í átt að betri líðan

Sálfræðiþjónusta á netinu!

Mín líðan býður upp á alhliða sálfræðiþjónustu á netinu. Boðið er upp á staðlaða sálfræðimeðferð á netinu, veitta af löggildum sálfræðingum, þar sem öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta. Einnig er boðið upp á fjarviðtöl við sálfræðinga, sem eru myndfundir þar sem skjólstæðingur og sálfræðingur eiga samskipti augliti til auglitis í gegnum netið. Í fjarviðtölum er hægt að fá aðstoð við hvers konar sálrænum vanda.

Svaraðu nokkrum spurningum um þína líðan

Hvaða meðferð hentar þér?

Svaraðu nokkrum einföldum spurningum um einkenni þunglyndis, félagskvíða og lágs sjálfsmats og athugaðu hvort að stöðluð sálfræðimeðferð á netinu henti þér!

STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ HJÁ MÍN LÍÐAN

Hvernig virkar sálfræðimeðferð á netinu?

Fræðsla
Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem hjálpa þér að bæta andlega líðan og auka sjálfstraust þitt!
  • Hver tími tekur 30–60 mínútur í yfirferð
  • Meðferðin er opin í 14 vikur frá kaupum
Verkefni og æfingar
Þú gerir verkefni og æfingar sem hjálpa þér að tileinka þér þær aðferðir sem farið er yfir í fræðslunni.
  • Gagnvirkar æfingar
  • Endurgjöf frá sálfræðingi á verkefni innan 1-3 virkra daga
  • Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta
Samtal við sálfræðing
Sálfræðingur þinn er þér ávallt innan handar. Þú getur átt samskipti við hann hvenær sem er með því að senda honum skilaboð. Þar færðu þá aðstoð og þann stuðning sem hentar þér.
  • Skilaboðum er yfirleitt svarað samdægurs
  • Skilaboðin eru send á milli í skrifuðum texta
Spurningalistar
Þú svarar stöðluðum spurningalistum þrisvar sinnum yfir meðferðina til að meta árangur þinn í meðferðinni.
  • Í byrjun hvers tíma metur þú einnig þína líðan á bilinu 0-10 og fylgist með framvindunni

TRAUSTIR SAMSTARFSAÐILAR

Þau treysta okkur

HVAÐ SEGJA SKJÓLSTÆÐINGAR MÍN LÍÐAN?

Umsagnir skjólstæðinga

Hefur minnkað kvíðann

„Ég mæli með meðferðinni hjá Mín líðan. Hún er mun ódýrari en að fara til sálfræðings á stofu og virkar alveg jafn vel. Ég gat unnið þetta á mínum hraða og þegar mér hentaði. Þetta hefur minnkað kvíðann hjá mér í samskiptum og gefið mér verkfæri til að vinna áfram í sjálfri mér."

  • 39 ára kona
    meðferð við félagskvíða
Fór fram úr væntingum mínum

„Meðferðin hjá Mín líðan fór fram úr væntingum mínum. Fyrst var ég frekar svartsýnn á að fara í meðferð "bara á netinu" en ekki tala við neinn í persónu. En þegar meðferðin byrjaði þá fannst mér ég geta opnað mig meira því ég var ekki beint fyrir framan ókunnuga manneskju."

  • 38 ára kynsegin
    meðferð við þunglyndi
Ég mæli eindregið með þessari meðferð

„Ég hef mikið nýtt mér efnið sem ég lærði í meðferðinni og er farin að takast á við þætti sem ég gerði ekki áður, t.d. tala á fundum, fara í bíó og sund. Ég mæli eindregið með þessari meðferð, þetta er nokkur vinna en vel þess virði."

  • 57 ára kona
    meðferð við félagskvíða
Aldrei náð jafn miklum árangri á stuttum tíma

„Í byrjun var ég efins um að sálfræðimeðferð á netinu myndi henta mér. Ég hafði áður farið í sálfræðitíma og var ekki viss hvort að verkefni á netinu myndu skila sama árangri. Það kom mér því verulega á óvart þegar ég áttaði mig á að ég hef aldrei náð jafn miklum árangri á stuttum tíma."

  • 22 ára kona
    meðferð við félagskvíða
Gaf mér tæki og tól

„Þessi meðferð gaf mér öll þau tæki og tól sem ég þarf til þess að halda áfram að bæta andlega líðan.“

  • 34 ára karl
    meðferð við félagskvíða
Gagnast mér út lífið

„Finn fyrir vellíðan sem ég hef aldrei fundið áður eftir þessa meðferð og aðferðirnar sem ég lærði munu gagnast mér út lífið.“

  • 40 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Líður 100x betur

„Mér líður 100x betur og ég mun aldrei gleyma framförunum mínum! Ég get talað við hvern sem er og er ekki hrædd við að vera ég sjálf lengur.“

  • 21 árs kona
    meðferð við félagskvíða
Gagnleg og uppbyggileg meðferð

„Mjög gagnleg og uppbyggileg meðferð. Gaf mér verkfæri til að breyta neikvæðum hugsunum og viðhorfum á jákvæðan hátt í leit að betri líðan.“

  • 56 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Persónuleg þjónusta

„Ég mæli hiklaust með Mín líðan. Þessi meðferð hefur hjálpað mér gríðarlega mikið. Góð og persónuleg þjónusta."

  • 41 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Opnaði augu mín fyrir því hvað kvíði er

„Þessi meðferð opnaði augu mín fyrir því hvað kvíði er og hvernig best er að takast á við hann. Ný sýn á aðstæður og möguleikar á hvað hægt er að gera er það sem maður lærir."

  • 57 ára kona
    meðferð við félagskvíða
Vel uppsett

„Þú tapar ekkert á meðferðinni. Hún er vel og mannlega uppsett. Af hverju ekki að reyna að láta sér líða betur?"

  • 21 árs kona
    meðferð við þunglyndi
Bjargaði lífi mínu

„Meðferðin hjá Mín líðan bjargaði lífi mínu. Frábær og persónuleg þjónusta sem sálfræðingarnir gefa sér tíma í að fara yfir svör og vangaveltur sjúklinga. Ég mæli hiklaust með þessari þjónustu."

  • 26 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Sérð ekki eftir því

„Þú sérð ekki eftir því að prófa þessa meðferð."

  • 69 ára kona
    meðferð við félagskvíða
Öðlast betri líðan

„Ég hafði ekki mikla trú á þessari meðferð, en að henni lokinni tileinkaði ég mér annað viðhorf og hef fengið hjálp með þunglyndið og öðlast betri líðan."

  • 48 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Frábær meðferð

„Frábær meðferð fyrir þá sem að þurfa á að halda!"

  • 48 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Mun nýta mér alla mína ævi

„Ég hef lært aðferðir sem ég mun nýta mér alla mína ævi."

  • 27 ára karl
    meðferð við þunglyndi
Góð lausn

„Ef þú veist ekki hvar þú átt að byrja, þá er þetta góð lausn."

  • 24 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Mæli tvímælalaust með þessari meðferð

„Mæli tvímælalaust með þessari meðferð. Það er svo gott að koma auga á hugsanaskekkjur og læra aðferðir til að breyta þeim til hins betra."

  • 40 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Sýndi mér að horfa á hugsanir sem skoðanir

„Meðferðin sýndi mér skýrt hvernig hugsanir mínar, tilfinningar og líðan eru tengd og hvernig ég á að horfa á hugsanir mínar sem skoðanir en ekki eitthvað sem býr í mér."

  • 26 ára karl
    meðferð við þunglyndi
Veitti mér tæki og tól

„Meðferðin veitti mér þau tæki og tól til þess að takast á við félagskvíða."

  • 26 ára kona
    meðferð við félagskvíða

Stöðluð sálfræðimeðferð á netinu

Kostir sálfræðimeðferðar á netinu

Fagleg

Meðferðin er veitt af löggildum, reyndum sálfræðingum.

Ódýrari

Meðferðin er ódýrari en hefðbundin sálfræðimeðferð á stofu.

Enginn biðtími

Þú getur hafið meðferðina strax.

Gagnreynd

Meðferðin byggir á árangursríkum, vísindalegum aðferðum.

Aðgengileg

Þú getur sinnt meðferðinni hvar og hvenær sem er.

Þægileg

Þú þarft bara að opna tölvuna, spjaldtölvuna eða farsímann og byrja að sinna meðferðinni.

Tímasparandi

Þú þarft ekki að keyra til sálfræðings og getur t.d. sinnt meðferðinni á vinnutíma.

Auðveld

Meðferðin er notendavæn og krefst lágmarks tölvuþekkingar.

FRÓÐLEIKUR UM SÁLRÆNAN VANDA

Vissir þú að…

Í Bretlandi er mælt með HAM á netinu sem fyrsta meðferðarúrræði við einkennum þunglyndis og félagskvíða?

Um 15–25% fólks upplifir þunglyndi einhvern tíma á ævinni?

Um 12% fólks upplifir félagskvíða einhvern tímann á lífsleiðinni?

Á Íslandi þjást um 12.000-15.000 manns af þunglyndi á hverjum tíma?

Félagskvíði er algengari meðal kvenna en karla?

Þunglyndi hefur áhrif á allt að 350 milljónir manna á hverjum degi?

Konur eru líklegri til að þjást af þunglyndi heldur en karlar?

Algengt er að fólk finni fyrir einkennum þunglyndis og kvíða á sama tíma?

World Health Organization telur að árið 2020 verði þunglyndi annað helsta heilsufarsvandamál í heiminum?

Þunglyndi byrjar snemma á ævinni, mjög oft á bilinu 18-30 ára?

Um 20-25% kvenna upplifa þunglyndi einhvern tímann á ævinni?

Um 7-12% karla upplifa þunglyndi einhvern tímann á ævinni?

Félagskvíði kemur yfirleitt fyrst fram á unglingsárunum?

Talið er að um 45% alls fólks upplifi alvarlegan kvíða einhvern tímann á ævinni?

Samkvæmt klínískum leiðbeiningum á Íslandi á HAM að vera fyrsta úrræði við einkennum þunglyndis og félagskvíða?

HVERJIR STANDA Á BAKVIÐ MÍN LÍÐAN?

Um okkur

Mín líðan er sálfræðiþjónusta á netinu rekin með leyfi frá Embætti landlæknis. Hjá okkur starfa hæfir og reyndir sálfræðingar sem veita þér góða og persónulega þjónustu.

Um Mín líðan

EF ÞÚ FINNUR EKKI SVARIÐ SEM ÞÚ LEITAR AÐ

Algengar spurningar

  • Já, Mín líðan býður upp á tvenns konar þjónustu: 1) Staðlaða sálfræðimeðferð á netinu við einkennum þunglyndis, félagskvíða og lágu sjálfsmati og 2) fjarviðtöl.

  • Meðferðin samanstendur af fræðslu, verkefnum, æfingum og spurningalistum. Hægt er að senda sálfræðingi skilaboð á öruggu heimasvæði hvenær sem er. Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta.

  • Ef þú velur staðlaða sálfræðimeðferð muntu aðeins eiga samskipti við sálfræðing í gegnum skrifaðan texta. Þú getur sent honum skilaboð hvenær sem er inni á öruggu heimasvæði. Ef þú velur fjarviðtöl, sem eru myndfundir í gegnum netið, muntu sjá sálfræðinginn augliti til auglitis.

  • Stöðluð sálfræðimeðferð er uppbyggð af fræðslu, verkefnum, æfingum og spurningalistum. Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta. Hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er á öruggu heimasvæði Mín líðan. Fjarviðtöl eru 50 mínútna myndfundir þar sem þú átt samskipti við sálfræðing augliti til auglitis með öruggum hætti í gegnum internetið. Fjarviðtöl eru alveg eins og sálfræðiviðtöl á stofu, eini munurinn er sá að þú átt samskipti við þinn sálfræðing í gegnum netið.

  • Stöðluð sálfræðimeðferð á netinu við einkennum þunglyndis, félagskvíða og lágu sjálfsmati er 10 tímar og kostar 39.900 kr. Sambærileg meðferð á stofu kostar u.þ.b. 170.000 kr. Þess bera að geta að meðferðin er niðurgreidd af flestum stéttarfélögum.

  • Meðferðin hentar öllum sem náð hafa 16 ára aldri. Hún er ætluð þeim sem glíma við væg til miðlungs einkenni þunglyndis eða félagskvíða eða eru með lágt sjálfsmat. Hún hentar þeim sem glíma við sálrænan vanda og þeim sem vilja minnka líkur á vanlíðan í framtíðinni. Hún hentar einnig þeim sem hafa áður lokið hugrænni atferlismeðferð og telja sig þurfa á upprifjun að halda.

  • Niðurstöður rannsókna hafa sýnt að: 1) HAM á netinu er árangursrík við að minnka einkenni þunglyndis og kvíða. 2) HAM á netinu getur verið jafn árangursrík og hefðbundin HAM á stofu hjá sálfræðingi. 3) Meðferðarsamband milli skjólstæðings og sálfræðings getur myndast í gegnum netið.

  • Stöðluð sálfræðimeðferð á netinu hentar þeim sem glíma við væg til miðlungs einkenni. Ef einkennin eru alvarlegri er mælt með fjarviðtölum. Hægt er að svara spurningalista á forsíðunni sem gefur þér vísbendingu um hvaða meðferðarleið hentar þér best.

  • Flest stéttarfélög niðurgreiða sálfræðiþjónustu hjá Mín líðan, m.a. Bandalag háskólamanna, VR, Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Kennarasamband Íslands og Verkfræðingafélag Íslands. Fáðu nánari upplýsingar hjá þínu stéttarfélagi.

  • Stöðluð sálfræðimeðfeðr á netinu hjá Mín líðan byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Hugræn atferlismeðferð (HAM) er ein algengasta gagnreynda sálfræðimeðferðin við einkennum þunglyndis og kvíða. Hún hefur verið notuð í mörg ár með góðum árangri við sálrænum vanda. HAM byggir á árangursríkum, vísindalegum aðferðum þar sem kenndar eru nýjar leiðir til að takast á við andlega vanlíðan. Í HAM lærir þú að draga úr vanlíðan með því að breyta hvernig þú hugsar og hegðar þér. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum NICE (National Institute for Health and Clinical Excellence), sem gefnar eru út af breskum yfirvöldum og Ísland fer eftir, er mælt með HAM á netinu sem fyrsta meðferðarúrræði við einkennum þunglyndis og kvíða.